Skip to main content

Hagnýtar upplýsingar

  • Skráning á námskeið jafngildir samningi um greiðslu á skólagjöldum. Séu forföll af önn tilkynnt áður en námskeið hefst er kr. 10.000,- staðfestingargjald óendurkræft. Námskeiðsgjöld fást ekki endurgreidd.
  • Skólinn býður aldrei upp á prufutíma.
  • Fatnaður fyrir stúlkur er ballettbolur, sokkabuxur og ballettæfingaskór.
  • Fyrir drengi er leggings, bolur og ballettæfingaskór.
  • Sítt hár þarf alltaf að vera greitt frá andlitinu og fest í teygju en helst greitt í ballettgreiðslu.
  • Nemendur mæti stundvíslega.
  • Það er ekki gert ráð fyrir að foreldrar séu með inni í kennslustund og best er að undirbúa nýja nemendur undir það. Í fyrstu tímunum höfum við reyndar opið inn til okkar og foreldrar geta því fylgst með. Í einstaka tilfellum gæti foreldri þurft að fylgja með inn í fyrstu 2-3 skiptin.
  • Í 2 ára ballett er gert ráð fyrir að annað foreldrið sé með í tímum til að byrja með.
  • Á haustönn er jólasýning inni í sal hjá forskóla og miðstigi en efsta stig er með jólasýningu í Tjarnarbíói.
  • Allir nemendur skólans frá 3 ára aldri taka þátt í veglegri vorsýningu skólans sem fram fer á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu.